03.02.2026
Við höfum sett í loftið Mínar síður fyrir viðskiptavini Stólpa á slóðinni https://minarsidur.styrkas.is. Á Mínum síðum geta viðskiptavinir okkar nálgast sölureikninga og hreyfingayfirlit á einfaldan og öruggan hátt. Einnig er hlekkur á Mínar síður aðgengilegur efst hægra megin á stolpigamar.is.
Leiðbeiningarmyndbönd eru aðgengileg á https://grunnur.is/kennsluefni þar sem má sjá hvernig sótt er um aðgang að Mínum síðum, bæði sem prókúruhafi og án prókúru, auk myndbands sem sýnir hvernig nálgast má sölureikninga og hreyfingayfirlit.
