Tjaldskemmur

Sterkar og vandaðar seglskemmur sem eru auðveldar í uppsetningu.

Ef þú vilt fræðast meira um vörur Stólpa þá er hægt að hringja í okkur eða senda okkur skilaboð með því að smella á hnappinn hér
Hafa samband

Vantar þig skemmu, varanlega staðsetta eða tímabundið?

Stólpi Gámar bjóða í samstarfi við fyrirtækið HALLGRUPPEN vandaðar og sterkar tjaldskemmur.

Hallgruppen útvegar færanlegar og varanlegar skemmur til ýmissa nota á heimsvísu og með meira en 30 ára reynslu á því sviði og hafa skrifstofur í Noregi, Svíþjóð og Danmörku.

Hallgruppen skemmurnar eru hannaðar með það fyrir augum að fljótlegt sé að setja þær upp og taka niður. Skemmurnar eru ýmist settar á steypta sökkla eða festar niður með stálteinum og/eða með stögum niður í steypuklumpa ef þörf er á frekari festingu vegna t.d.vindálags.

Skemmurnar eru til ýmissa nota og er seglið mjög sterkt eða 750gr/fm, þær hafa mikið vind- og snjóálag og hafa reynst vel á norðlægum slóðum enda Hallgruppen norskt fyrirtæki sem þekkir vel slíkar aðstæður.

Nánari upplýsingar um hallgruppen