Stólpi og G. Skaptason gera þjónustusamning um sérhæfða þjónustu við flutningatæki

Stólpi og G. Skaptason ehf. hafa undirritað nýjan þjónustusamning um þjónustu við yfirbyggingar og búnað fyrir flutningatæki.

Samningurinn felur í sér að Stólpi, í gegnum þjónustueininguna Stólpa Smiðju ehf., mun annast ábyrgðarskoðanir og þjónustu á yfirbyggingum, vögnum, MBB vörulyftum sem og Thermo King og Carrier kælivélum sem G. Skaptason flytur inn til landsins.

G. Skaptason ehf. hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt innflutningsstarf á yfirbyggingum og vögnum til vöruflutninga, meðal annars frá Igloocar. Á síðari árum hefur vöruframboð aukist með lausnum frá Igloocar/Wingliner og á þessu ári bættist við samstarf við austurríska framleiðandann Wingo/Wingliner.

Með samningnum verður Stólpi viðurkenndur þjónustuaðili á Íslandi fyrir vörur frá Wingliner og Igloocar.

Stólpi mun jafnframt halda úti lager af helstu varahlutum sem gerir fyrirtækinu kleift að veita hraða og skilvirka þjónustu. Þá mun fyrirtækið einnig sinna þjónustu við eldri gerðir frá framleiðendunum, en slík tæki eru nú þegar í þjónustu hjá Stólpa.

 

„Þessi samningur er mikilvægt skref í að efla þjónustu við viðskiptavini. Með auknu aðgengi að sérhæfðri þjónustu og varahlutum getum við tryggt betri rekstraröryggi og hraðari viðbrögð,“

segir Sigurbjörn Hallsson, framkvæmdastjóri hjá Stólpa Smiðju ehf.

 

„Við leggjum mikla áherslu á áreiðanlega þjónustu og erum ánægð með að fá Stólpa sem viðurkenndan þjónustuaðila fyrir okkar vörur á Íslandi,“

segir Garðar Skaptason hjá G. Skaptason ehf.

Prenta: