04.06.2026
Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa, hefur ákveðið að breyta um hlutverk hjá félaginu að eigin ósk. Hann hefur ákveðið að láta af starfi forstjóra og taka að sér verkefni með áherslu á stór verkefni tengd uppbyggingu í húseiningalausnum félagsins. Forstjórastarfið hefur verið auglýst laust til umsóknar.
Börkur Grímsson;
„Síðustu ár hafa verið virkilega skemmtileg og viðburðarík. Við höfum náð heilmiklum árangri á skömmum tíma og ég hlakka til að halda áfram að vera hluti af Stólpa-teyminu í nýju hlutverki. Vöruþróun síðustu ára hefur skapað fjölmörg sóknarfæri í húseiningum sem við hyggjumst nýta á komandi misserum,” segir Börkur.
