12.06.2026
Þann 11. júní 2025, fór fram formleg afhending vinnubúðaeininga til Landsvirkjunar í Hvammi. Með afhendinguna lýkur vel heppnuðu verkefni þar sem Stólpi sá um smíði og uppsetningu á færanlegum vinnubúðum í landi Hvamms 3 við Hvammsveg í Rangárþingi ytra. Einingarnar þjóna margvíslegum tilgangi og eru meðal annars svefneiningar, aðstaða fyrir heilsugæslu, mötuneyti, skrifstofur og heilsurækt. Á myndinni eru Birgir Leo, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, Einar Sverrir frá Verkís, eftirlitsaðili Landsvirkjunar, og Oddgeir, þjónustustjóri Stólpa. Allir aðilar hafa lýst yfir mikilli ánægju með framgang verksins og samstarfið í heild.