Samfélagsstyrkir

Stólpi starfar á sviði eigna og leigustarfsemi sem styðja við daglegt líf fólks og atvinnulífs. Sem hluti af Styrkás samstæðunni vill félagið taka virkan þátt í að efla þau samfélög þar sem það starfar.
 
Styrkveitingar Stólpa eru hluti af samfélagsábyrgð Styrkás samstæðunnar og fara fram í samræmi við sameiginlega styrkjastefnu sem gildir fyrir öll félög samstæðunnar. Með samfélagsstyrkjum styður Stólpi við verkefni í almannaþágu, meðal annars á sviði íþrótta, æskulýðsmála, menningar, fræðslu og öryggis. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem stuðla að sjálfbærni, samfélagslegri þátttöku og sterkari innviðum í nærumhverfi félagsins.
 
Sótt er um styrk á vef Styrkás. Öllum umsóknum er svarað.
Nánari upplýsingar um styrkjastefnuna og umsóknarferlið má finna á heimasíðu Styrkás.
Fyrir frekari upplýsingar má senda fyrirspurn á styrkir@styrkas.is.