04.11.2026
Þóroddur Ottesen Arnarson hefur verið ráðinn forstjóri Stólpa, dótturfélags Styrkás hf. Hann kemur til félagsins frá ÍAV hf., þar sem hann hefur starfað í rúm 30 ár, síðast sem forstjóri. Þóroddur hefur störf 15.janúar 2027.
Stólpi er leiðandi þjónustuaðili á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi á Íslandi. Félagið býður húseiningar, íbúðareiningar, gáma og geymslulausnir til sölu og leigu og leggur áherslu á hátt þjónustustig og trausta afhendingu. Þá rekur Stólpi smiðjustarfsemi þar sem félagið annast m.a. gáma-, kæli- og vagnaviðgerðaþjónustu og trésmíðaþjónustu. Með ráðningu Þórodds fær Stólpi til liðs við sig stjórnanda með langa reynslu af rekstri og fjármálum í verktakastarfsemi og mannvirkjagerð.
Áður en Þóroddur tók við sem forstjóri ÍAV árið 2021 var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins. Hann er með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á reikningshald og fjármál.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:
„Með öflugri vöruþróun og uppbyggingu sérfræðikunnáttu hefur Stólpi orðið leiðandi á markaði fyrir húseiningar, bæði fyrir atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði. Meðal viðskiptavina Stólpa eru ríki og sveitarfélög og fyrirtæki í þeirra eigu ásamt flestum verktakafyrirtækjum landsins. Þóroddur hefur leitt rótgróið verktakafyrirtæki og þekkir því vel þarfir viðskiptavina okkar. Ég býð hann velkominn til starfa um leið og ég þakka Berki Grímssyni, fráfarandi forstjóra, kærlega fyrir hans störf í þágu félagsins. Það er styrkur fyrir Stólpa að Börkur mun áfram starfa með félaginu að stórum verkefnum sem fram undan eru í húseiningum.“
Þóroddur Ottesen Arnarson:
„Stólpi hefur sterka stöðu á sínum markaði og öflugt starfsfólk. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og sé mikil sóknarfæri bæði á sviði húseininga og í annarri starfsemi félagsins. .“
