Ný raðhús í Stykkishólmi sýna möguleika einingalausna

Stólpi hélt fjölmennan kynningarfund á Fosshótel Stykkishólmi 29. október. Þar voru kynnt ný raðhús sem Stólpi hefur reist með einingalausnum í Víkurhverfi, auk þess sem farið var yfir fjölbreytta möguleika slíkra lausna til að mæta húsnæðisþörf sveitarfélaga, leigufélaga og fyrirtækja. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólms, ávörpuðu gesti og fulltrúar Stólpa, arkitekta, framleiðenda og verktaka svöruðu spurningum.

 

Tíu íbúðir í tveimur raðhúsum
Að Bauluvík 1 rísa tíu íbúðir í tveimur raðhúsum, hver um 45 fermetrar að stærð. Batteríið arkitektar hönnuðu húsin og KOMA Modular í Tékklandi framleiddi þau fyrir Stólpa, en Skipavík í Stykkishólmi annaðist gerð undirstaðna. Húsin uppfylla kröfur byggingarreglugerðar og henta jafnt sem íbúðir og starfsmannahús. Þau koma fullbúin til landsins og á byggingarstað þarf aðeins að steypa undirstöður og tengja vatn, hita og rafmagn.

 

Mynd: Batteríið Arkitektar.

 

Mynd: Batteríið Arkitektar.

 

Sveigjanlegar lausnir fyrir ólíkar þarfir
Börkur Grímsson forstjóri Stólpa sagði markmiðið frá upphafi hafa verið að þróa litlar, hagkvæmar og vandaðar íbúðir þar sem fólki liði vel. „Við teljum mun ódýrara að gera mistök á teikniborðinu en í byggingunni sjálfri,“ sagði Börkur. Á fundinum var farið yfir hönnun, útfærslur og afhendingartíma. Hver íbúð er sett saman úr þremur einingum sem raða má saman á ólíka vegu og því má laga lausnina að þörfum hvers verkefnis og skapa fjölbreyttari byggð. Filip Kovác, sölustjóri KOMA Modular, sagði um 90% framleiðslunnar fara fram í verksmiðju.

Ráðherra boðar breytingar á regluverki
Ragnar Þór sagði lengi hafa gætt efasemda í garð einingahúsa hér á landi en reynslan hefði sýnt fram á hagkvæmni þeirra. Hann lagði áherslu á gildi slíkra lausna á landsbyggðinni, þar sem vinnuafl og verktakar væru oft af skornum skammti, og greindi frá því að breytingar á regluverki, sem ættu að greiða götu nýrra lausna í húsnæðisuppbyggingu, yrðu lagðar fyrir Alþingi á næsta ári. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta sé framtíðin,“ sagði ráðherra.

Fjölbreytt framboð húsnæðis
Jakob Björgvin sagði húsnæðismál meðal brýnustu verkefna sveitarfélaga og rakti uppbygginguna í Víkurhverfi, þar sem 34 íbúðir hefðu risið á undanförnum árum. „Við viljum að þeir sem eiga hér heima geti fundið húsnæði við sitt hæfi og þeir sem vilja flytja hingað fái tækifæri til þess einnig,“ sagði hann og kvað verkefni Stólpa mikilvæga viðbót við húsnæðisframboð bæjarins.

Að fundi loknum gafst gestum kostur á að skoða íbúðirnar.

 

 

 

Prenta: