Hvort tveggja er í boði. Hægt er að kaupa gáma og fá þá sérmerkta eða málaða í þínum óskalit. Einnig er hægt að leigja gáma til skemmri eða lengri tíma, t.d. undir lager, fyrir árstíðabundnar vörur, fisk- og kjötafurðir, búslóðir og margt fleira.
Við hjá Stólpa sjáum um að geyma gáminn þinn á vöktuðu svæði sé þess óskað. Í boði er að geyma gáma fyrir utan svæðið fyrir þá sem þurfa að komast í gáma utan opnunartíma. Auðvitað sækjum við og sendum fyrir vægt verð! Hafðu samband í síma 422-1230, eða sendu okkur fyrirspurn stolpigamar@stolpigamar.is
Já, Stólpi býður til leigu sérstaka lása á gámana sem falla í sérstakan vasa, en ómöglegt er að komast að lásunum, og það eykur mjög á öryggi og ver innihald þeirra fyrir óboðnum gestum.
Stólpi er með til leigu og sölu geymslugáma í stærðunum 6, 8, 10, 20 og 40 fet. Einnig bjóðum við kæli- og frystigáma, einangraða gáma, fleti og tank-gáma í ýmsum stærðum. Gámasala er í síma 422-1211 og gámaleiga í 422-1230.
Það eru gámar sem eru notaðir þegar krafist er ákveðins hitastigs þegar flutningur fer fram. Það eru ýmist kæligámar til að flytja ferskvöru eins og grænmeti eða frystigámar sem t.d. frystur fiskur eða kjöt er flutt í.
Já, það er einfalt og þægilegt. Stólpi býður staðlaðar gistieiningar til ýmissa nota, t.d sem viðbótar gistirými fyrir ferðarþjónustuaðila, vinnuaðstöðu verktaka á byggingarstað, kaffistofur og margt fleira. Einnig WC gámahús sem koma með öllum tækjum og lögnum og eru tilbúin til notkunar. Hafðu samband við okkur í síma 422-1210 eða sendu okkur fyrirspurn huseiningar@stolpigamar.is
Þá hefurðu samband við Stólpa og við kippum öllu í lag. Hjá okkur starfar hópur vaskra iðnaðarmanna sem kunna tök á járnsmíði, réttingum og málun. Þeir gera gamla gáminn eins og nýjan.
Í Sægörðum 15 er Stólpi Smiðja til húsa þar fara fram allar viðgerðir á gámum og vögnum auk breytinga og sérsmíði.
Beinn sími: 422-1209, netfang: stolpismidja@stolpigamar.is