Fullbúnar húseiningar uppfylla húsnæðisþörf fyrirtækja hratt og vel

Í sérblaðinu Sóknarfæri, sem Ritform gefur út, er fjallað um hvernig fullbúnar húseiningar frá Stólpa geta verið hagkvæm og skjót lausn þegar fyrirtæki þurfa að koma upp starfsaðstöðu á stuttum tíma, til dæmis í fiskeldi þar sem uppbygging er oft hröð og verkefni staðsett á afskekktum svæðum.

 

Í viðtali við Guðmund Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóra sölusviðs Stólpa, kemur fram að hraðinn í afhendingu og uppsetningu sé einn helsti kostur eininganna. Þær geta meðal annars nýst sem skrifstofur, starfsmannaaðstaða eða önnur þjónusturými sem styðja við rekstur fyrirtækja þar sem þörf er á sveigjanlegum og skilvirkum lausnum.

 

Lesa viðtalið í heild sinni: Hér

Prenta: