Viðvörun vegna falskrar Facebook-síðu

Við viljum vekja athygli á því að svo virðist sem fölsk Facebook-síða sé að nýta sér efni frá Stólpa Gámum, þar á meðal myndir og upplýsingar sem tengjast starfsemi fyrirtækisins.

Við áréttum að umrædd síða er ekki á vegum Stólpa Gáma og hefur enga tengingu við fyrirtækið.

Málið hefur verið tilkynnt til viðeigandi aðila, þar á meðal netsvikadeildar lögreglunnar, og unnið er að því að fá síðunni lokað eins fljótt og auðið er.

Við hvetjum viðskiptavini og aðra sem verða varir við slíkt efni til að sýna aðgát og:

• Smella ekki á óþekkta eða grunsamlega hlekki.
• Veita ekki persónuupplýsingar eða greiðsluupplýsingar á grundvelli slíkra færslna.
• Hafa samband við okkur ef vafi leikur á áreiðanleika upplýsinga eða ef þið verðið vör við efni af þessu tagi.

Prenta: